|
Könnun
er einhver sem les þetta ennþá?
já
5 atkvæði
Fjöldi atkvæða: 5
|
24.12.2008 03:31:27 / Shark
sjáum hvort nýtt blogg geri okkur activari  http://www.gremlins.blog.is/blog/gremlins/
»
23.09.2008 13:51:54 / Shark
Jæja eftir reiðarslag gærdagsins með mama mia, þá horfði ég á tvær dramamyndir í viðbót, karlmennskan alveg farin eftir hálfa mama mia úff. The bucket list og wall-e, 2 snilldar myndir, ef þið hafið ekki séð þær þá bara beint í það að rædda því - ekki karlmannlegustu myndirnar þarna úti, en shit hvað þær eru góðar, the bucket list er náttúrulega með 2 bestu leikurum samtímans Jack Nichols og Morgan Freeman og óhætt að segja að þetta sé sennilega einhver besta mynd Freeman síðan hann lék í the shawshank redemption, já og stelpur, þetta er þriggja klúta mynd Wall-e er svo rómantísk teiknimynd um vélmenni, fyndin, flott og skemmtileg í alla staði, ásamt því að vera skemmtileg áráðursmynd fyrir því hversu löt við erum/stefnum í að verða  Sé það eftir þessa gagnrýni mína afhverju ég vinn ekki við að skrifa gagnrýnar en held samt að málið hafi komist til skila
»
22.09.2008 15:58:30 / Shark
úff er að gera heiðarlega tilraun til að horfa á mama mia, karlmenn ég get sagt það með sanni að þetta er ekki mynd fyrir okkur, ég finn hvernin karlmennskan dregst smám saman úr mér hérna við hvert lag úff. Mæli ekki með henni fyrir karlmennsku sakir  jæja slökkti um miðja mynd, nóg komið að þessu rugli! en að öðru, guð minn góður, ég kíkti á þetta facebook rugl í gær, guð minn góður, hvernin nennir fólk að skoða þetta rugl? þetta er THE ULTIMATE gelgju síðan, eina sem þú sérð þarna eru quis JEY og hvaða mood fólk hefur MEIRA JEY jú og svo nokkrar myndir hjá einum og einum ENNMEIRA JEY (þetta jey reyndar var gott jey), þetta er bara fullt af RUSLI sem glepur augað, ekkert að sjá nema jú quis AFTUR JEY jújú þau voru fín þegar ég var 16 ára, en hvað er fullorðið fólk að gera á þessari síðu? ég bara spyr? ábyggilega fínt ef þig langar að finna gamlan kunningja og sjá hvernin mood hann hefur frá degi til dags JEY (ókey skal hætta þessum jeyum) af þeim fáu sem ég skoðaði þarna, fann ég ekkert blogg, hvað er ég þá að læra um hann? á ég að hanga þarna allan daginn og senda á hann comment sem og alla hina vinina? til að fá feedback í smáum skömmtum? kannski er ég bara að rugla? það er kannski einhvers konar blogg þarna þó ég hafi ekki séð það? en hey ég get alla vega séð eina og eins mynd af honum og hvaða mood hann/hún hefur í dag JEY (síðasta ég lofa). Já ég er bitur, hélt nú kannski að þetta biði uppá aðeins meira en eitthvað gelgju stöff þar sem svo margir "fullorðnir" nota þetta, ég alla vega fann það ekki, svo að ég mun ekki verða tíður gestur þarna inni þið megið eiga þetta fyrir mér og mínu röfli  Jæja þá hef ég fengið smá útrás yfir þvi  Af tvennu slæmu þá er nú myspace skömminni skárra. uss 2 blogg á stuttum tíma, hlýt að vera að missa mig hérna
»
22.09.2008 02:51:11 / Shark
jamm og jæja er að spá í að fara og setja eitthvað bull frá mér hérna inn aftur 
en ég er fluttur í hafnarfjörðinn, flutti þangað um verslunarmannahelgina líður bara vel hérna Teddi er samt á bakkanum hjá mömmu og pabba og líður vel þar, sökum þess hvað ég er að vinna mikið þá get ég ekki haft hann hjá mér, auk þess sem það er ekki æskilegt að leggja það á hann að hanga í leiguíbúð með mér sem ég gæti misst hvenær sem er hann hefur víst fengið nóg af því í gegnum tíðina að flytja, svo að ef ég get gefið honum stöðugleika með þessu þá bara verður það þannig auk þess sem ég veit að hann á eftir að læra mikið og hafa það gott á bakkanum ég hitti hann nú samt í flestum fríum hjá mér, svo er hann nú ekki nema símtal í burtu 
en já ef einhver veit það ekki þá er ég að vinna sem öryggisvörður þessa dagana, búinn að vera ár núna, eða 14 sept byrjaði á afmælisdaginn hans Eiríks gaman að því. Elska vinnuna mína 1. skipti á ævinni sem ég er í vinnu sem mér líður ógeðslega vel í, að fá borgað fyrir að vera leiðinlegur er bara æðislegt úff mér er farið að líða eins og gelgju með alla þessa broskalla hérna í færslunni hehe.
annars fátt að frétta, ég er enn feitur, ég reyki ennþá, ég drekk ennþá sjaldan og ég spila póker inná milli 
Andrea vinkona mín er víst farin erlendis svo að manni leiðist svo á kvöldin núna að hafa hana ekki á msn til að chatta við að maður bara fer að blogga, úff þá er það nú slæmt en vona að hún hafi það gott úti blessunin á það skilið en já víst fæstir af þeim sem skoða þetta sem vita hver hún er svo nóg um það, verðið bara að spyrja til að komast að 
annars er það að frétta að ég bý nú einn í nánast fyrsta skipti á ævinni, nánast alltaf verið í sambandi síðan um tvítugt, aldrei liðið nema nokkrir mánuðir á milli sambanda, var síðast með stelpu sem endaði í júlí, þannig að hef verið single síðan síðast bjó ég einn er ég keypti í Þorlákshöfn, en það entist ekki lengi þar sem hugborg flutti til mín fljótlega á eftir. farinn að skilja það núna afhverju ég sæki alltaf í sambönd, kann ekkert að búa svona einn, þó mér líði voða vel og altþað þá einhvern veginn verður maður voða einmana að hanga alltaf einn heima eftir vinnu, en til þess hefur maður msn það bjargar manni oft á leiðinlegum kvöldum er samt ekki alveg tilbúinn til að fara í samband strax svo maður er ekkert að leita, en maður á víst aldrei að segja aldrei, maður veit aldrei hvenær maður hittir einhverja sem maður fellur fyrir enda skilst mér samkvæmt miðli sem að vinur minn fór til að sú næsta sem ég verð með verði sú sem ég eigi eftir að verða gamall með, svo það er víst eins gott að vanda valið 
jæja mér hefur alla vega tekist að teygja þetta bull um ekki neitt ansi langt, svo við skulum segja þetta bara gott núna og ef einhver kíkir hér inn ennþá, þá bara að láta mann vita 
»
30.04.2008 01:05:45 / Shark
haldiði ekki að ég hafi verið búinn að skrifa þvílíka færslu sem svo bara PÚFF gufaði upp þegar ég ætlaði að birta hana  ekkert lítið pirrandi, þið verðið þá bara að bíða í nokkra mánuði enn eftir færslu
»
24.11.2007 08:21:13 / Shark
Úff, ég er búinn að sjá það að ég er alveg ómögulegur bloggari, skeður aldrei neitt hjá mér, þarf að fara að hætta að nota bloggið til að segja frá mér og nota það bara til að lýsa yfir skoðunum á hlutum svo náttúrulega það litla sem skeður breytist alltaf frekar fljótt heeh. Sá samt við síðustu færslu að það var alla vega commentað það er góð breyting  Annars hef ég alltaf verið MJÖG spes á skoðanir mínar, er ekki alltaf á sömu skoðun og maðurinn við hlið mér, á það líka til að vera mjög fastur á mínum skoðunum þó það sé ekki alltaf rétta skoðunin - en þið vitið það náttúrulega fyrir en við skulum sjá til hvort að ég fari að nota þetta blogg eitthvað meira og þá jafnvel eins og áður sagði til að viðra skoðanir mínar á hlutunum Rakst hins vega á hreint frábært blog um daginn - http://stormsker.blog.is/blog/stormsker/ - shit hvað maðurinn er góður penni, bara gaman að lesa færslurnar hans, ekki skemmir fyrir að hann virðist ansi oft vera á sömu skoðun og ég með hlutina, bara kemur þeim betur frá sér  Látum þetta duga í bili, until later, adios all | | |
»
22.10.2007 14:24:16 / Shark
Jæja ekki alveg ár liðið  margt hefur nú skeð á stuttum tíma - ég er kominn með vinnu sem öryggisvörður Haga í Smáralind - er með Hagkaup og aðrar verslanir Haga þar í eftirliti skrýtið hvað maður getur fengið mikið kikk útúr þvi að stoppa þjófa og tala við þá (þó svo að maður finni alltaf líka fyrir vorkunn, finnst þetta stundum svoldið óþæginlegt en samt ekki) alveg hreint út ágætis vinna þó hún sé svona full róleg á köflum þar sem þetta snýst aðallega um eftirlit á myndavélakerfi sem getur orðið svoldið þreytandi sérstaklega ef það er lítið að gera en launin bæta manni það upp Mamma og pabbi eru semsagt aðallega með strákinn fyrir mig núna þar sem ég er að vinna langa daga (tvær vaktir - 9 til 1/2 8 eða 11 til 8 flesta daga - vinní 7 daga fæ svo frí í 3 (helgi) vinn svo í 7 og fæ frí í 4 (mán, þri. mið. og fimmtudag)) þannig að maður er alltaf í fríi bara 3. hverju helgi en þetta venst eins og allt annað jæja látum þetta þá duga í bili
»
25.07.2007 15:04:31 / Shark
jæja komið hátt í ár síðan maður skrifaði eitthvað hérna inn
síðas held að það eigi ekki við mig að blogga svona, en miðað
við teljara síðunnar þá eru enn einhverjir sem kíkja á þetta
sjaldgæfa kjaftæði mitt 
Hvað hefur svo dregið á daga mína síðan síðast Eins og allir
eða alla vega flestir vita þá er ég orðinn einstæður aftur, fluttur
á Eyrarbakka til m og p, guð má vita hversu lengi maður verður þar,
mér finnst það náttúrulega frábært að þau skyldu taka mig inn aftur
en jafnframt skelfilegt að þurfa að búa undir reglum annarra en
minna eigin 
ég er kominn með nýja vinnu, hættur hjá Nóa Siríus, ákvað að
elta drauminn og gerast sölumaður, fékk vinnu hjá www.firmaskra.is og er búinn að vera
þar á aðra viku núna, gengur ekkert alltof vel ennþá að selja en
held samt að þetta komi, hálfskrýtið svona að þurfa ekki að mæta á
einhvern stað klukkan 8 að morgni og fara að gera eitthvað, heldur
að sitja aðallega heima við tölvuna og fletta upp fyrirtækjum til
að kynna sér aðeins og hringja svo í þau til að kynna okkur,
svoldið öðruvísi en ég er vanur en held að þetta eigi eftir að
verða alveg ágætt.
jæja á næstum ári þá held ég að ég sé búinn að fara yfir nánast
allt merkilegt sem hefur komið fyrir mig, ekki mikið sem maður
hefur frá að segja fyrir heilt ár, en það er bara eins og ég hef
alltaf verið ekki haft frá miklu að segja en finnst samt gaman að
tala lengi um þetta litla það sem maður getur verið skrítinn

jæja ef það er einhver sem enn rennir yfir þessa vitleysu hjá
mér, þá endilega skildu eftir fótspor í commentakerfinu 
»
15.10.2006 23:42:15 / Shark
Úff hvað maður er alltaf latur að skrifa hérna inn, breytir
svosem ekki miklu þar sem fáir virðast lesa þetta kjaftæði í manni
allavega miðað við Commentin sem maður fær, Bara Eiríkur sem
virðist lesa þetta. Held að teljarinn á blog-central sé eitthvað
fucked up.
Annars lítið að frétta úr heimi Sharks, Teddi reyndar byrjaður
að ná smá lesskilning í skólanum og heimanámið þar með farið að
verða auðveldara þar sem það kostar ekki eins mikið tuð nú þegar
hann er farinn að skilja þetta aðeins, nú er þetta nefnilega að
verða spennandi Ekki man ég eftir að hafa orðið jafn pirraður á
heimalærdóm og hann sonur minn (eða þannig) 
Heimilið tekur alltaf á sig meiri og betri mynd með hverjum
mánuðinum kaupum alltaf eitthvað nýtt inn um hver mánaðamót til að
auka rýmið okkar og koma þessu drasli fyrir í, er að gæla við að
kaupa mér skóskáp um næstu mánaðamót, losna við þessa hel....s skó
úr ganginum, Skotta líka að gera okkur geðveik með að naga skóna
okkar á nóttinni erfitt að skamma hana fyrir það því við
náum henni aldrei við það 
Erum annars að reyna að vinna okkur uppúr þessari sóða áráttu
tilkomna af leti, gengur svona og svona en skömmumst okkar alla
vega ekki fyrir að fá til okkar gesti núna eins var oft hér áður
fyrr þannig að þetta stefnir allt í rétta átt en betur má en duga
skal, en þetta skal hafast að koma því uppí rútínu að halda
heimilinu við enda finnur maður hvað manni líður mikið betur heima
hjá sér í snyrtilegu húsi tala nú ekki um ef það er hreint
líka 
Annars er það næst á dagskrá hjá mér að kíkja á einkaþjálfara
reyna að taka eitthvað af þessari helvítis fitu af sér og fækka
aukakílóunum, ætla að reyna að fara í það fyrir mánaðarmót.
Merkilegt svona þegar maður eldist hvað maður sér hvað letin í
manni getur skemmt mikið fyrir manni, heimilið verður sóðalegt
maður fitnar og étur verr en ella og líður þar með aldrei
fullkomnlega vel. þeir sem þekkja mann bara útá við sjá þetta
kannski ekki hjá manni þar sem ég hef alltaf reynt að vera
snyrtilegur til fara en allir þeir sem hafa komið inná heimilið
mitt áður fyrr hafa séð þetta og sjálfsagt dæmt mann réttilega sem
sóða þó þeir hafi nú alltaf verið svo kurteisir að segja það ekki
við mann, því miður kannski, en nú er ég semsagt að reyna að vinna
bót í þessari and.....s leti minni og er dagamunur á manni, gengur
oft vel í 2-5 daga en svo er svo auðvelt að detta í sjónvarpið eða
tölvuna, maður gæti náttúrulega verið að missa af einhverju.
Annars hef ég mikið verið að spá í vinum almennt undanfarið,
skrýtið hvað maður hefur vaxið í sundur frá gömlu æskuvinunum,
höfum flestir einhvern veginn farið hver í sína áttina eigum
sínhver áhugamálin sitthverja vinnuna og bara lífið almennt séð,
einhvern veginn eftir að maður varð faðir datt maður svoldið útúr
vinahópnum og hefur aldrei komist inn aftur. Ég lifi líka mínu lífi
allt öðru vísi (held ég) en gömlu vinirnir, þeir virðast einhvern
veginn lifa margir hverjir enn í sama farinu og við gerðum á
unglingsárunum, drukkið um hverja - aðra hverja helgi, verslað föt
og geisladiska bara hugsað um að skemmta sér sem mest, auðvitað fæ
ég inná milli löngun til að fá mér í glas eða bara fara út að
skemmta mér og leyfi ég mér það yfirleitt ef það kemur upp en það
skeður svona 3-4 á ári að þessi löngun hellist svona yfir mig.
Með þessum skrifum mínum er ég ekki að áfellast þessa
gömlu vini mína heldur sína fram á hversu ólík skref við höfum
valið í lífinu og þannig því miður vaxið í sundur, ég er því miður
ekki sú týpa að nenna bara að hittast ef það er bjór í spilinu eins
og virðast vera einu tilefnin til að hægt sé að fá gömlu vinina til
að kíkja á mann. Ég sakna gömlu góðu dagana þegar við gátum verið
saman bara til að hanga, ég virðist ekki eiga neina svona vini í
dag bara til að hanga með eða kíkja á ef mér líður illa (á þó það
gott að eiga góðan vin í kærustunni sem nennir að hlusta á rausið á
mér, en hún nennir ekki að rökræða við þrjóskupúka eins og mig mjög
lengi ) Annars er mínum Gömlu vinum svo sannarlega alltaf
óhætt að kíkja í kaffi og spjall en ég get ekki lofað að nenna að
hitta þá bara til að fá mér bjór og spjall þó það sé gaman inná
milli þá væri ég alveg til í að hitta þá líka bara hversdags svona
til að hanga Þó það verði náttúrulega að viðurkennast að þetta
gengur í báðar áttir og ég er ekki duglegur að heimsækja þá í
kaffi, verð bara að viðurkenna að ég hef ekki kíkt á neinn af þeim
vinum mínum sem búa í Reykjavík síðan ég flutti sjálfur í bæinn og
gerði lítið sem ekkert að því áður, auglýsi því eftir kaffiboði
heima hjá einhverjum vina minna sem fyrst og lýsi því um leið
yfir að þeir eru velkomnir til mín hvenær sem ég er heima í kaffi
og spjall hvort sem er einir eða með spússu!
En nóg af þessu helvítis væli
»
05.07.2006 23:26:34 / Shark
Ég sé það núna
að ég er ekki þessi "BLOGG" týpa, alltof latur til að vera að rita
eitthvað hérna inn reglulega
Annars
er það helst af mér að frétta að ég er hættur í skóla og farinn að
vinna á lagernum hjá Nóa Siríus (hættulegasti vinnustaður
heims fyrir mann í mínum þyngdarflokk) og svo erum við Hugborg
flutt í nýja íbúð, keyptum okkur eigin íbúð í hlíðunum og erum
svona smám saman að koma okkur fyrir þó hægt gangi 
Svo er
náttúrulega gaman að segja frá því að hann Teddi minn er orðinn
stór strákur, missti fyrstu tönnina sína á mánudag og fékk
náttúrulega kaup kaups hjá tannálfinum, svo er hann náttúrulega að
byrja í skólanum í haust, fer í Hlíðarskóla, ósköp er þetta nú
fljótt að líða finnst ekki lengra en 3-4 ár síðan maður var
sjálfur í barnaskóla laumureykjandi bakvið annaðhvert hús á
bakkanum með strákunum. en það eru víst orðin aðeins fleiri ár en
það 
Ef að
heimsókna kerfið á þessari síðu er að virka þá virðast um 10 - 30
manns kíkja hér inn á dag en mér virðist sem ekkert þessara
manna/kvenna virðist skilja eftir sig spor þannig að erfitt er að
sjá hverjir nenna að fletta uppá svona "dauðri" síðu þannig að í
guðanna bænum commentið nú aðeins eða skrifið í gestabókina svo
maður sjái hverjir eigi leið hér um Annars skulum við svo
bara sjá til hvort ég "komist" í að blása einhverja glæðu í þessa
síðu 
»
16.10.2005 14:27:54 / Shark
Hugborg vann miða á tónleikinn Bítl í einhverjum landsbankaleik
um daginn, ákváðum loks að drífa okkur í gær. Mjög góð skemmtun og
óhætt að segja að enginn sé svikinn af því að drífa sig á hann, kom
mér reyndar mest á óvart hversu vel hann Jói úr Idol söng/syngur
vel, verð svo reyndar að viðurkenna að ég hef ekki hugmynd um hver
þessi Sigurjón Brink er, miðað við hversu þvílíkt vel þessi maður
syngur ætti maður nú að hafa heyrt um hann fyrr en svo er bara ekki
Tekin eru fyrir slatti af þekktum bítlalögum og flutt og
svo er spjallað á milli laga og gert smá grín óhætt er þó að
ástarsenan sem var sett upp eftir hlé var með því flottara í
sýningunni, enda fer þetta fram að mestu leyti þar sem þeir sitja
og syngja fyrir okkur en ástarsenan er í raun eina atriðið þar sem
þeir standa upp og leika. Pálmi Sigurhjartarson spilaði svo á
píanóið og fór hamförum þar, snilldar píanóleikari þar á ferð, enda
hefur hann spilað með sniglabandinu í nokkur ár. það er svo óhætt
að segja að hann hafi verið að tapa sér á píanóinu í lokin er þeir
komu aftur inn eftir mikið klapp þar sem hann tók sóló og spilaði
stef úr nokkrum þekktum bítlalögum í röð.
Semsagt ansi góð sýning allt í allt, 3 * af 5* mögulegum 
Annars er það helst að frétta af mér að ég er á leið í aðgerð á
miðvikudaginn útaf öxlinni á mér, vonandi að þetta lagist núna.
Miðað við allan sársaukann sem er búið að lýsa fyrir mér,
sérstaklega fyrstu vikuna, held ég að maður yrði ansi
vonsvikinn ef að þetta lagar hana ekki permanently 
»
26.09.2005 18:08:32 / Shark
JÆJA ég var víst klukkaður, ætli maður verði ekki að vera með í
leiknum 
1. ég heiti Oddur Tómas Oddsson
2. ég er í Sálfræðinámi í HI
3. ég keyri um á blárri corollu eðalvagni
4. ég á lítinn hund, hamstur og yndislegan strák 
5. mér finnst kynlíf gott (sá á einhverri bloggsíðunni að eitt
atriði ætti að innihalda staðreynd um kynlífið )
jæja þá er sá listinn kominn, ætli maður verði ekki að klukka
einhvern til baka best að prófa að klukka Eirík, Davíð Stein
"litla" frænda og Odd Smára hinn "litla" frænda 
»
18.09.2005 12:54:36 / Shark
»
18.09.2005 12:50:15 / Shark
»
15.09.2005 17:47:08 / Shark
Já ég veit það er langt síðan síðast, ég hef komist að því að ég
og blogg eigum illa saman, ég er nefnilega of latur til að nenna að
uppfæra það reglulega 
Enn á daga mína hefur ýmislegt drifið síðan ég bloggaði síðast,
ég er til dæmis byrjaður aftur á fullu í HI, ég er byrjaður í vinnu
og hættur í henni aftur og ég er fluttur í borg óttans
eitthvað sem ég bjóst aldrei við að myndi gerast, en svona er þetta
hlutirnir breytast og mennirnir með næsta mánudag ætla ég svo að
kíkja í nýja vinnu, veit að ég kann ágætlega við það þar sem ég hef
unnið við hliðstætt áður (símasala) 
Annars kann ég svosem ágætlega við Borgarlífið, erum í
tiltölulega rólegu hverfi í Grafarvoginum þannig að það er ágætt,
Teddi er svo reyndar í leikskóla í hinum enda bæjarins, niður á
eggertsgötu á stúdenta leikskólanum þar, sem hefur sína kosti og
galla, maður er til dæmis neyddur niðurá háskólasvæði alla morgna
þannig að maður hefur ekkert annað að gera en að lesa sem er gott,
en stærsti gallinn er kannski sá að Teddi er svo langt frá hinum
krökkunum að hann fær ekkert að kynnast þeim utan skólatíma, þannig
að hann hefur enga vini til að leika sér við eftir skóla, þarf bara
að hanga hérna með ýmist mér eða Hugborgu (eftir því hvort okkar er
að vinna, vinnum aðra hvora viku) þannig að honum leiðist stundum
greyinu. Því miður eru nefnilega bara stelpur á hans aldri hérna í
blokkinni og þeim er hálf illa við að fá einhvern strák með sér í
sína leiki, skrýtnar þessar stelpur 
Ég er svo líklega á leiðinni í aðgerð þann 5.okt, þar sem á að
skera í öxlina á mér og stytta sinar og slíkt og svo sauma það
aftur við brjóskið í liðnum hálf kvíðinn fyrir því ! En maður
tekur bara á þeim stóra sínum og tekur þetta með stæl. Það vill til
að þetta er sú vinstri þannig að kynlífið verður ekki alveg ónýtt á
meðan 
annars svona í lokin ætla ég að birta ansi sniðugan lista sem ég
stal af Huga.is 
Tíu merki þess að þú sért Kristinn
Bókstafstrúarmaður
10 - Þú harðneitar tilvist þúsunda guða annara
trúarbragða en bregst við í reiði og svívirðu þegar einhver vogar
sér að afneita þínum guði.
9 - Þú móðgast og finnst það “ómannlegt” þegar vísindamenn segja að
mannkynið hafi þróast frá öðrum lífsformum en þér finnst ekkert
athugavert við það að biblían haldi því fram að við höfum verið
sköpuð úr moldardrullu.
8 - Þú hlærð að fjölgyðistrúarmönnum en átt á sama tíma í engum
vandræðum með að trúa á þrenningarguð sjálf/ur.
7 - Andlitið á þér verður fjólublátt af reiði þegar þú heyrir um
“grimmdarverkin” framin í nafni Allah, en þú kveinkar þér ekki einu
sinni þegar þú heyrir hvernig guð/Jehova slátraði öllum börnum
Egyptalands og fyrirskipaði fjöldamorð á heilu þjóðflokkunum í
Jósúabók, þar með talið konum, börnum, dýrum og jafnvel trjám!
6 - Þú hlærð að Hindúatrúnni fyrir að taka menn í guðatölu og
Grikkjum fyrir að segja að guðirnir hafi sængað með konum, en þér
finnst ekkert að því að Heilagur Andi eigi að hafa barnað Maríu,
sem seinna meir fæddi mennskan guð sem var síðar drepinn og reis
svo upp frá dauðu og sveif til himna.
5 - Þú ert tilbúinn að eyða allri ævinni í það að leita að gloppum
í kenningum vísindamanna um aldur jarðarinnar (nokkrir miljarðar
ára), en þér finnst ekkert að því að trúa tímatali skráðu af
meðlimum einhverja eyðimerkur ættbálka brons-aldarinnar sem sátu í
tjöldum sínum og giskuðu að Jörðin væri nokkra kynslóða gömul.
4 - Þú trúir því að allur íbúafjöldi plánetunnar fyrir utan þann
afmarkaða hóp sem er sömu trúar og þú (að undanskildum
sértrúarsöfnuðunum sem þú ert í samkeppni við) muni verja heilli
eilífð að þjást í Helvíti. En telur samt þína trú þá “ástsælustu”
og “umburðarlyndustu”.
3 - Á meðan nútíma vísindum, sagnfræði, jarðfræði, líffræði og
eðlisfræði hefur mistekist að sannfæra þig um vitleysu biblíunar þá
tekurðu einhverjum fávita sem veltir sér um á gólfinu og “talar
tungum” sem allri þeirri sönnun sem þú þarfnast fyrir að biblían sé
sönn.
2 - Þú skilgreinir 0.01% sem góðan árangur þegar kemur að svari
bæna. Þú telur það sönnunargagn fyrir því að bænir virki og þú
telur hin 99.99% þar sem bænirnar báru ENGANN árangur einfaldlega
vera "vilja guðs".
1 - Þú veist í raun mun minna um Biblíuna, Kristni og sögu
kirkjunnar heldur en flestir guðleysingjar og efahyggjumenn - en
kallar þig samt kristinn.
jamm ansi sniðugt það 
annars væri svo ágætt að þið fáu sem lesið þessar fáu færslur
mínar, mynduð nú commenta á þetta svona við og til að maður fái að
vita hverjir eru að lesa þetta bull 
»
Síður: 1 2
|
|